Færsluflokkur: Enski boltinn
19.9.2008 | 22:18
putting out the fire with gasoline
Ferguson kann sitt fag og þekkir muninn á milli góðs liðs og liðs sem er tilræði við fótbolta.
Ferguson: Arsenal erfiðari en Chelsea | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.9.2008 | 13:19
Villigata nr. 15(%)
Það er og hefur verið okkar háttur hér á landi ísa að einblína of mikið á ákveðnar hugmyndir, á kostnað þess að missa af tækifærum. Tökum krónuna sem dæmi, hver er ávinningur okkar af því að halda i hana svona lengi? Enginn, bara óbætanlegur kostnaður, hins vegar er Ísland með sinn eigin gjaldmiðil og verður áfram, meðan núverandi forsætisráðherra fær að ráða.
Verðbólga er ekkert nema mælistika á verðhækkanir, og það er alltaf einhver verðbólga þar sem er hagvöxtur, kannski ekki 15%, en smá verðbólga er merki um heilbrigði markaðsins. Það að verðbólgu sé að finna í löndum þar sem evran er gjaldmiðill, er ekki og ætti aldrei að vera skerið sem umræðan um aðild að ESB steitir á. Það er verið að drepa málinu á dreif.
Ekki rétt að tala um kreppu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.9.2008 | 21:11
Agnes og efnahagsmálin
Agnes Bragadóttir viðhafði þvílíkt bull um íslenskt efnahagslíf i Silfri Egils s.l. sunnudag, að það er ekki einkennilegt að Árni Johnsen hafi fallið frá stefnu vegna ummæla hennar um hann í útvarpsþætti. Stjörnublaðamaðurinn dæmir sig sjálfur.
Árni fellur frá málssókn á hendur Agnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2008 | 22:31
Óþarfi að agnúast
Aðalatriði í málinu er að ekki er verið að stöðva eða hætta við framkvæmdir, heldur að draga saman með heildstæðum hætti eins miklar umhverfisupplýsingar og hægt er. Það er síðan leyfisveitenda og þeirra sem fjárfesta að taka ákvörðun um að fara í málið. Mikilvægt er að menn vinni hratt,"
Tilvitnun í Geir Haarde forsætisráðherra í Visir.is (1.ág.´08)
Sé ekki betur en ríkisstjórnin sé sammála um að vera skynsöm í þessu máli, með umhverfisráðherra í broddi fylkingar. Miklar framkvæmdir krefjast mikils undirbúnings.
Það vita allir.
Skiptar skoðanir um ákvörðun Þórunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2008 | 23:07
Fengur
Silvestre í raðir Arsenal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.8.2008 | 16:58
Á-i
United vann Samfélagsskjöldinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
4.8.2008 | 13:40
Ekki "Adieu" bayor
Mikið lán fyrir Arsenal að hinn knái sóknarmaður Emmanuel Adebayor mun ekki hverfa úr röðum liðsins, eins og orðrómur hafði verið um. Líklegast er það ekki minna lán fyrir hann, því snillingar á borð við Thierry Henry, Patrick Viera, Ljungberg og Pires, svo nokkrir séu nefndir, hafa ekki fengið að njóta sín hjá nýjum liðum, eins og þeir gerðu hjá Arsenal. Arsenal sér um sína.
Annars var höfundur á ættarmóti um helgina og sá þar snilldartakta í fótboltakeppni hjá yngstu kynslóðinni, framtíð kvennafótboltans á Íslandi mun halda áfram að vera björt.
Arsenal vann Real Madríd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2008 | 23:28
Arsenal tekur þetta
Það er erfitt að skilja bilun í blogginu, sem skilar sér í breyttu útliti síðu.
Breytt útlit er ekki á ábyrgð höfundar.
Arsenal tekur þetta fjórfalt í vor!
4.7.2008 | 09:01
Að berjast við vindmyllur
With friends like these who needs enemies? Þessi setning kom mér í hug þegar niðurstaða Seðlabankastjóra á vaxtaákvörðunardegi var sú að halda stýrivöxtum óbreyttum.
Verðbólgan hér á landi stafar af þremur ástæðum:
1. Verð á hrávöru og matvöru á erlendum mörkuðum hefur hækkað mjög að undanförnu og það er EKKERT sem Seðlabankastjórar geta gert til að hafa hemil á því.
2. Verðbólgan rekur rætur sínar einnig til þess að fasteignir eru í neyslukörfunni okkar (sér vísitölu fyrir fasteignir ASAP) og um leið og verð á fasteignum fór upp, jókst verðbólgan.
3. Veiking krónunnar þýðir hækkandi vöruverð. Stýrivextir hafa lítil áhrif þar sem fjárfestar eru áhættufælnir og krónan er áhættusöm.
Málið er reyndar þetta; hér á landi er STAGFLATION, eða hjöðnun ásamt verðbólgu og þá er svarið ekki að halda stýrivöxtum í hæstu hæðum, nema ætlunin sé að koma heimilum og fyrirtækjum í landinu á hnéin.
Að koma fyrirtækju og bönkum úr landi er að takast. Og þá verða framtíðarhorfur bjartar, við getum farið að einbeita okkur algjörlega að útflutningi á íslenskum lopa og lopaþróun.
Slæmar horfur í efnahagslífinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.6.2008 | 18:10
Þórðargleði í fréttum?
Leiðari Fréttablaðsins í dag gagnrýnir íslenska neytendur fyrir að hafa verið á "eyðslu-fylleríi" og núna séu þeir að glíma við timburmennina. Leiðaraskrifari lendir í miklum "vanskilum" með skilning á efnahagsástandinu. Leiðarahöfundur ætti að láta kollega sinn, Þorstein Pálsson, um að skrifa um efnahagsmál framvegis.
Við erum að glíma við lánakreppu í heiminum sem er ekki runnin undan rifjum íslenskra neytenda. Áhrif lánakrepunnar verða dýpri á Íslandi vegna þess að við erum með örsmáan gjaldmiðil sem enginn lítur við. Sveiflur í efnahagsmálum eru ófrávikjanlegar og erfiðleikar í einu landi hafa áhrif í öðrum, svo best er að halda algjörlega aftur af schadenfreudískum tilfinningum, gott fólk.
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar