19.9.2008 | 22:18
putting out the fire with gasoline
Ferguson kann sitt fag og þekkir muninn á milli góðs liðs og liðs sem er tilræði við fótbolta.
Ferguson: Arsenal erfiðari en Chelsea | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.9.2008 | 13:19
Villigata nr. 15(%)
Það er og hefur verið okkar háttur hér á landi ísa að einblína of mikið á ákveðnar hugmyndir, á kostnað þess að missa af tækifærum. Tökum krónuna sem dæmi, hver er ávinningur okkar af því að halda i hana svona lengi? Enginn, bara óbætanlegur kostnaður, hins vegar er Ísland með sinn eigin gjaldmiðil og verður áfram, meðan núverandi forsætisráðherra fær að ráða.
Verðbólga er ekkert nema mælistika á verðhækkanir, og það er alltaf einhver verðbólga þar sem er hagvöxtur, kannski ekki 15%, en smá verðbólga er merki um heilbrigði markaðsins. Það að verðbólgu sé að finna í löndum þar sem evran er gjaldmiðill, er ekki og ætti aldrei að vera skerið sem umræðan um aðild að ESB steitir á. Það er verið að drepa málinu á dreif.
Ekki rétt að tala um kreppu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.9.2008 | 21:11
Agnes og efnahagsmálin
Agnes Bragadóttir viðhafði þvílíkt bull um íslenskt efnahagslíf i Silfri Egils s.l. sunnudag, að það er ekki einkennilegt að Árni Johnsen hafi fallið frá stefnu vegna ummæla hennar um hann í útvarpsþætti. Stjörnublaðamaðurinn dæmir sig sjálfur.
Árni fellur frá málssókn á hendur Agnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.9.2008 | 12:29
Einhlítar afleiðingar efnahagsaðgerða?
Tvö lönd byggðust í upphafi af nýbúum sem voru að flýja skattheimtu í heimalandi sínu: Ísland og Bandaríki Norður Ameríku. Sannir frjálshyggjumenn!
Í þessari efnahagslegu niðursveiflu sem nú er í gangi í heiminum heyrast þær raddir að frjálshyggjan hafi sýnt að hún sé gagnslaus, virki ekki, best sé að henda henni fyrir borð! Það er getur ekki verið meira frá sannleikanum. Markaðurinn er að sýna og sanna sig, nú hreinsast út veikari fyrirtæki og þau sem standa traustum fótum munu lifa þetta af. Ódýrir peningar kalla á fjárfestingar sem þurfa ekki að skila eins miklum arði og farið hefur verið út í fjárfestingar sem ekki eru mjög arðvænlegar.
Hagfræðiprófessor minn sagði að uppáhaldsorðatiltæki hagfræðinga væri "on the other hand", eða á hinn bóginn, vegna þess að afleiðingar efnahagsaðgerða eru aldrei einhlítar! Hann vissi sínu nefi, eins og allir góðir hagfræðingar.
Það á ekki að þurfa afskipti ríkisvaldsins af efnahagsmálum bara vegna þess að það er niðursveifla, þetta er nátturuleg hreyfing markaðsins. Það er hins vegar löngu kominn tími á að endurskoða gjaldmiðilinn. Hvorki fyrirtæki né heimili í landinu geta staðið undir þessum ónýta gjaldmiðli, niðursveiflan er mun dýpri fyrir vikið. Hvenær verður nóg komið?
Ógnvænleg efnahagsþróun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.9.2008 | 15:05
Með á nótunum?
Skuldatryggingarálag (CDS eða Credit Default Swap) er aldrei annað en "quote", þegar samið er um lán. Þá kemur fram það skuldatryggingarálag sem er í boði. Það reyndist mun lægra en talað hafði verið um fyrir íslenska ríkið, rétt eins og þegar Kaupthing tók stórt lán, ekki alls fyrir löngu.
Nauðsynlegt var að auka gjaldeyrisforðann og heppilegt að það var ekki "of dýrt" eins og fjármálaráðherra talaði um í sumar.
Næsta mál á dagskrá er að hefja lækkunarferli stýrivaxta. Eru allir með á nótunum þar? Við getum bara vonað að svo sé.
30 milljarða króna lán | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.9.2008 | 22:31
Óþarfi að agnúast
Aðalatriði í málinu er að ekki er verið að stöðva eða hætta við framkvæmdir, heldur að draga saman með heildstæðum hætti eins miklar umhverfisupplýsingar og hægt er. Það er síðan leyfisveitenda og þeirra sem fjárfesta að taka ákvörðun um að fara í málið. Mikilvægt er að menn vinni hratt,"
Tilvitnun í Geir Haarde forsætisráðherra í Visir.is (1.ág.´08)
Sé ekki betur en ríkisstjórnin sé sammála um að vera skynsöm í þessu máli, með umhverfisráðherra í broddi fylkingar. Miklar framkvæmdir krefjast mikils undirbúnings.
Það vita allir.
Skiptar skoðanir um ákvörðun Þórunnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.8.2008 | 10:47
Hræsni
Það er vonandi að allir þeir sem eru þátttakendur í þessu grátbroslega hringleikahúsi stjórnmála í Reykjavíkurborg, geri sér grein fyrir að almenningur veit að þeir eru þarna fyrir þá sjálfa og engan annan, hvorki kjósendur né stefnumál.
Allir stjórnmálamenn og wannabees eru sekir um þessa hræsni. Ungliðahreyfing VG ekki síður en aðrir.
Mótmælt fyrir utan ráðhúsið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2008 | 23:07
Fengur
Silvestre í raðir Arsenal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.8.2008 | 16:58
Á-i
United vann Samfélagsskjöldinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
9.8.2008 | 19:27
Þögn gulls ígildi...
Það er að koma í hausinn á stjórnvöldum að ekki var byggður upp gjaldeyrisforði, á meðan bankarnir voru að byggjast upp. Núna er ekki hagstætt að auka gjaldeyrisforðann, en er um eitthvað val að ræða? Svarið er að þetta verður að gerast, hvort sem fjármálaráðherra skilur það eða ekki.
Skuldatryggingarálag (credit default swap eða CDS) er "quote", sem byggir alls ekki á undirliggjandi viðskiptum. Þetta er ekki föst stærð eins oft virðist talað um. Þetta kom skýrlega í ljós nýlega, þegar Kaupþing tók stórt lán, en skuldatryggingarálagið var eitthvað í kringum 100 punkta, ef ég man rétt.
Það er mikið alvörumál að tala á þennan hátt við alþjóðlegan fjármálamarkað.
Of dýrt að efla gjaldeyrisforðann nú | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Innlent
- Lyftari yfir fót og rjúfa þurfti hurð
- Er kynjastríð í uppsiglingu?
- Dæmdur fyrir kynferðislegt nudd á stjúpdóttur
- Viðræður í Karphúsinu ganga misvel
- Sjálfstæðisflokkurinn á einhvern hátt stjórnlaus
- Áttu að rannsaka akademíuna en gerðu það aldrei
- Kona myrt á 10 mínútna fresti
- Fatlaður drengur fær ekki þjónustu í verkfalli
- Svona verður verkfall lækna á Akureyri
- Ákærður fyrir ítrekuð brot gegn systur sinni
Viðskipti
- Dr. Bjarni Pálsson til Vinds og jarðvarma
- Icelandair færir eldsneytið til Vitol
- Arkitektar ósáttir við orðalag forstjóra FSRE
- Ný ríkisstjórn þurfi að hafa hraðar hendur
- Indó lækkar vexti
- Hlutverk Kviku að sýna frumkvæði á bankamarkaði
- Þjóðverjar taka við rekstri Fríhafnarinnar
- Trump lyftir Bitcoin-verði í hæstu hæðir
- Ekki svigrúm til frekari launahækkana
- Sækja fjármagn og skala upp