Hugrekki pólitíkusa (oxymoron?)

Það er ekki oft sem svona staða kemur upp: olíuverð ríkur upp, matvælaverð ríkur upp og hlutabréfamarkaðir falla í kjölfarið á lánsfjárkreppunni í BNA. Þetta gerist allt mikið hraðar en við eigum að venjast og við erum að horfa á VERÐBÓLGUKREPPU (stagflation) í fyrsta skipti í 35 ár. Þá var orsökin hækkun á olíuverði, en núna er það líka hækkun á matvælum sem er að orsaka þetta. Hvað heldur Seðlabanki Íslands að hann geti hækkað stýrivexti mikið til að hafa áhrif á heimsmarkaðsverð á olíu og matvælaverð?

Þessi umhverfisstefna að nota korn sem orku á bíla er að gera hvað? Bjarga heiminum og orsaka hungursneyð? Jájá allir þið Algorar þessa heims verið stoltir af ykkur! Hverjir skyldu vera fyrstu fórnarlömbin: fátæk ríki og fátækt fólk í ríkum ríkjum. Ég hef ekkert á móti umhverfisvernd, en ég verð aldrei tilbúinn í þetta lýðskrum. Sýnum heilbrigða skynsemi.

Einn pólitíkus kom mér skemmtilega á óvart í vikunni, eitthvað sem gerist nokkurn veginn aldrei. Talandi um oxymoron ........Það er maður í Samfylkingunni sem HEFUR VIT Á EFNAHAGSMÁLUM!!! Öðruvísi mér áður brá! Sjálfstæðisflokkurinn er með stóra skóflu og heldur áfram að moka. Sjálfstæðisflokkurinn á sér von þrátt fyrir það og hún heitir Þorgerður. Áfram Þorgerður! Ég mun segja ykkur hver þessi vonarneisti Samfylkingarinnar er ef hann heldur áfram að sanna sig.

Handboltinn: Hvað er með þennan Snorra Sturluson?  


mbl.is Forsætisráðherra bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn grípa gæs

Þessi frétt ætti ekki að koma neinum á óvart -eða hvenær skyldi vera rétti tíminn til að fjárfesta í fasteignum nema þegar markaðurinn er í léttu frosti? Fasteignakaup í 101 voru einskonar uppboð þar sem hver yfirbauð annan. Þá var tími til að brosa út í annað og HALDA AÐ SÉR HÖNDUM og sippa rólega einn Glenmorangie. Hverjir eru núna að selja? Þeir sem bankarnir eru að skrúa - engin spurning.

Stóra spurningin er hins vegar þessi: hvenær verður húsnæðisverð tekið út úr neysluvísitölunni? Húsnæðiskostnaður á hins vegar heima þar. Krakkar mínir, þetta er eitt af stóru málunum (en ekki eins stórt og að losna við Vírusinn (krónuna).

Landsleikur Íslendinga og Makedóníu: Njóta forystumenn HSÍ engrar virðingar? Eða hvernig stendur á því að dómarar ÞORA að koma hingað til lands og dæma okkar leik á þennan hátt?


mbl.is Fjársterkir menn að kaupa húsnæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wenger úr takti?

Var markmiðið í sumar hjá Arsenal ekki að kaupa reynda leikmenn? Nú er Wenger enn og aftur búinn að kaupa leikmann sem er ennþá að leika sér með lego-kubbana. Það er gott og blessað að fjárfesta í ungum og efnilegum leikmönnum (maður var nú sjálfur einu sinni ungur og efnilegur) en liðið þarf reynsluboltana sem kunna þetta. Þessi Aaron Ramsey á e.t.v. eftir að verða góður en hann var ekki rétti kosturinn að þessu sinni. Þetta er eins og að fjárfesta í hlutabréfum; þetta er bara spurning um tímasetningu.


« Fyrri síða

Höfundur

Pinky and the Brain
Pinky and the Brain
Höfundur er ungur og glæsilegur, með áhuga á fótbolta, fjármálum og single malt viský.

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband